
Moroccanoil Restorative hair mask
FYRIR EFNAMEÐHÖNDLAÐ HÁR SEM ÞARF AÐ STYRKJA
Fyrir efnameðhöndlað – þurrt hár sem þarf viðsnúning.
Moroccanoil® Restorative Hair Mask er 5-7 mínútna djúpnæringameðferð sem endurbyggir hárið og bætir prótein-byggingu hársins sem hefur orðið fyrir skemmdum af hitatækjum, umhverfisþáttum eða efnameðhöndlun.
Hágæða, djúpnærandi formúlan er auðug af arganolíu, shea-smjöri og bætandi próteinum sem endurheimta teygjanleika hársins og endurbyggja styrk þess innan frá.
HVERNIG SKAL NOTA
Kreistu umframvatn úr hárinu og berðu ríkulegt magn af maskanum í handklæðaþurrkað hár.
Leyfðu maskanum að vera í 5-7 mín en hann má vera lengur.
Skolaðu vel,
Þessi maski er mjög bætandi fyrir innri byggingu hársins og eftir maskann ætti að innsigla umbæturnar með hárnæringu.
Notaðu einu sinni í viku en sjaldnar eftir því sem heilsa hársins batnar.
Tips:
Fyrir þykkt gróft hár: Blandaðu 1 teskeið af Moroccanoil® Treatment hárolíunni með útí maskann fyrir aukinn glans og teygjanleika.